|
TAKIÐ eftir allar konur! Það er mikilvægt
fyrir ykkur að lesa áfram, það gæti bjargað hjónabandinu eða
sambandi. Karlmenn í heiminum hafa sett húsreglur fyrir lokakeppni
HM í Þýskalandi og það er eins gott að þið farið eftir
þeim.
REGLURNAR:
1. Frá 9. júní til 9. júlí 2006 skaltu
fylgjast vel með fréttum á hmbolti.net svo þú vitir hvað er að
gerast á lokakeppninni í Þýskalandi. Þá getum við talað lítilega
saman á meðan á lokakeppninni stendur þar sem ég mun ekki ræða um
neitt annað en FÓTBOLTA.
2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er
sjónvarpið mitt – alltaf og án allra
undantekninga.
3. Það er allt í lagi ef þú þarft að
komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú
skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki. Ef þér skildi detta í
hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í
fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis
fáir þú kvef.
4. Á meðan á leik stendur verð ég
heyrnalaus, mállaus og blindur gagnvart þér – nema ef til þess
kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að
borða.
5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa
alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og
nóg af snakki. Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu
horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef
það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma.
6. Ef þú sérð að ég er reiður eða
pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja “þú jafnar
þig – þetta er bara leikur” eða “ekki hafa áhyggur – þeir vinna
kannski næst.” Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða
pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en
ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum
fyrr.
7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og
þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru
og bara ef staðan er góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik,
ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun
til að “eyða tíma saman”.
8. Endursýningar á mörkum eru mjög
mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða
ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í
viðbót.
9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki
börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar
fáránlegar veislur vegna þess að:
a) ég mun ekki mæta
b) ég mun ekki mæta og
c) ég mun ekki mæta
10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér
í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn.
11. Markaþættirnir í lok dagsins eru
alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að
láta út úr þér setningu eins og “en þú hefur séð þetta áður” eða
“af hverju skiptir þú ekki um stöð?” Lestu aftur reglu númer
2.
12. Og að lokum, sparaðu þér setningu
eins og “Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti”. Ég
heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski
boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn og fleira
við.
Takk fyrir að virða
reglurnar.
Karlmenn um heim
allan! |